Benedikt ráðinn framkvæmdastjóri fjármála Orkuveitu Reykjavíkur - DV
Þriðjudagur 14.maí 2024
Eyjan

Benedikt ráðinn framkvæmdastjóri fjármála Orkuveitu Reykjavíkur

Eyjan
Þriðjudaginn 1. mars 2022 17:02

Benedikt K. Magnússon

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benedikt K. Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála hjá Orkuveitu Reykjavíkur og hefur störf á næstu dögum. Benedikt hefur starfað hjá KPMG frá árinu 2001, verið á meðal eigenda frá árinu 2008 og sat í stjórn fyrirtækisins á árunum 2009 – 2013. Hann hefur setið í framkvæmdastjórn og verið sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG frá árinu 2013.

Benedikt er með M.Sc. próf í fjármálum frá Háskóla Íslands. Hann hefur víðtæka reynslu af hvoru tveggja fjármála- og rekstrarráðgjöf sem og af stafrænni umbreytingu fyrirtækja.

Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Benedikt sé spenntur að hefjast handa. „Starfsemin hefur mikil áhrif hér á landi og leikur m.a. stórt hlutverk í sjálfbærri þróun samfélagsins, s.s. í orkuskiptum og loftslagsmálum. Ég hlakka til að kynnast starfseminni enn frekar og starfa með öflugum hópi í þeim áhugaverðu verkefnum sem eru framundan“

„Víðtæk reynsla Benedikts sem starfað hefur við ráðgjöf hjá KPMG síðustu tuttugu árin mun koma til með að nýtast Orkuveitu Reykjavíkur afar vel og ég býð hann velkominn til starfa,“ er haft eftir Bjarna Bjarnason, forstjóra OR.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir hættulega galla vera á örorkufrumvarpinu – „Í ákveðnum tilvikum munu árstekjur öryrkja lækka“

Segir hættulega galla vera á örorkufrumvarpinu – „Í ákveðnum tilvikum munu árstekjur öryrkja lækka“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – ríkisstjórnin er eins og plastpokamaður

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – ríkisstjórnin er eins og plastpokamaður