Sungu afmælissönginn fyrir æfinguna

Sungu afmælissönginn fyrir æfinguna

Landsliðsmennirnir syngja afmælissönginn fyrir Ísak.
Landsliðsmennirnir syngja afmælissönginn fyrir Ísak. mbl.is/Víðir Sigurðsson

Ísak Bergmann Jóhannesson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er 21 árs í dag og fyrir vikið sungu félagar hans í landsliðinu fyrir hann afmælissönginn í upphafi æfingar liðsins á æfingasvæði Újpest í Búdapest í morgun.

Ísak er leikmaður Düsseldorf í þýsku B-deildinni, í láni frá Danmerkurmeisturum FC Köbenhavn. Hann kom inn á sem varamaður í sínum 25. A-landsleik gegn Ísraelsmönnum í fyrrakvöld.

Ísak Bergmann Jóhannesson hitar upp fyrir æfinguna í dag.
Ísak Bergmann Jóhannesson hitar upp fyrir æfinguna í dag. mbl.is/Víðir Sigurðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert