Gunnar Jökull Hákonarson látinn

Gunnar Jökull Hákonarson látinn

Látinn er í Reykjavík Gunnar Jökull Hákonarson hljómlistarmaður, fimmtíu og tveggja ára að aldri. Gunnar Jökull fæddist 13. maí 1949 í Reykjavík og ólst þar upp. Hann bjó í Reykjavík alla sína tíð nema árin 1986 til 1994 þegar hann bjó í Svíþjóð.

Gunnar Jökull hóf ungur að leika í hljómsveitum og hann var aðeins 14 ára gamall þegar hann var byrjaður að leika sem trommuleikari í Tónum. Tveimur árum síðar, eða þegar hann var 16 ára hóf hann að leika með bresku hljómsveitinni Syn og vakti trommuleikur hans mikla eftirtekt en Gunnar varð fyrstur trommuleikara í heiminum til að spila svokallað tvöfalt bít.

Þegar hann kom frá Bretlandi 18 ára gamall spilaði hann fyrst með hljómsveitinni Tempó og síðan með Flowers. Í framhaldi af því lék Gunnar með hljómsveitinni Trúbroti.

Gunnar lætur eftir sig einn son.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert