Saknaðarilmur hlýtur 8 Grímutilnefningar

Saknaðarilmur hlýtur 8 Grímutilnefningar

Unnur Ösp Stefánsdóttir í Saknaðarilmi.
Unnur Ösp Stefánsdóttir í Saknaðarilmi. Ljósmynd/Jorri

Saknaðarilmur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur, byggt á bókum Elísabetar Jökulsdóttur í leikstjórn Björns Thors og sviðsetningu Þjóðleikhússins hlýtur flestar tilnefningar til Grímunnar, Íslensku sviðslistaverðlaunanna í ár eða átta talsins.

Næstflestar tilnefningar, eða sex talsins, hlýtur Ást Fedru eftir Söruh Kane í leikstjórn Kolfinnu Nikulásdóttur og sviðsetningu Þjóðleikhússins. Því næst kemur Með Guð í vasanum eftir Maríu Reyndal í leikstjórn höfundar og í sviðsetningu Borgarleikhússins með fimm tilnefningar. Gríman verður afhent í Þjóðleikhúsinu miðvikudaginn 29. maí. 

Margrét Vilhjálmsdóttir í Ást Fedru.
Margrét Vilhjálmsdóttir í Ást Fedru.

Hér má sjá heildarlista tilnefninga, en tilnefnt er í 18 flokkum: 

Sýning ársins 2024

  • Félagsskapur með sjálfum mér eftir Gunnar Smára Jóhannesson. Sviðsetning: Klöverættin í samstarfi við Tjarnarbíó.
  • Fúsi - aldur og fyrri störf eftir Agnar Jón Egilsson og Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson. Sviðsetning: Sviðslistahópurinn Monochrome í samstarfi við Borgarleikhúsið og List án landamæra.
  • Molta eftir Rósu Ómarsdóttur.  Sviðsetning: Rósa Ómarsdóttir og Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Gerðarsafn. 
  • Saknaðarilmur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur leikverk byggt á bókum Elísabetar Jökulsdóttur. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Stroke eftir Virginiu Gillard, Andreu Elínu Vilhjálmsdóttur, Köru Hergils Valdimarsdóttur og Sæmund Andrésson. Sviðsetning: Trigger warning í samstarfi við MurMur Productions og Tjarnarbíó.
Kristbjörg Kjeld og Katla Margrét Þorgeirsdóttir í Með Guð í …
Kristbjörg Kjeld og Katla Margrét Þorgeirsdóttir í Með Guð í vasanum Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir



Leikrit ársins 2024

  • Félagsskapur með sjálfum mér eftir Gunnar Smára Jóhannesson
  • Verkið eftir Jón Gnarr
  • Með Guð í vasanum eftir Maríu Reyndal
  • Lúna eftir Tyrfing Tyrfingsson
  • Saknaðarilmur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur leikverk byggt á bókum Elísabetar Jökulsdóttur
Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson og Agnar Jón Egilsson í Fúsi: aldur …
Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson og Agnar Jón Egilsson í Fúsi: aldur og fyrri störf.



Hvatningarverðlaun valnefndar 2024 fyrir framúrskarandi nýbreytni í sviðslistum

  • Fúsi - aldur og fyrri störf. Einstök nýbreytni í leikhúsi þar sem fatlaður maður segir sögu sína með leiklistina, sem hann hefur helgað líf sitt, að vopni. Fúsi er verðugur fulltrúi listamanna sem eru án landamæra og hefur hann sett líf þeirra og list í kastljósið með sýningunni. Heiðurinn er bæði Fúsa sjálfs og leikstjórans Agnars Jóns, en saman feta þeir óhefðbundna leið til að segja brothætta sögu Fúsa á áhrifaríkan og einlægan hátt.
  • House of Revolution. Áríðandi og löngu tímabær vettvangur fyrir listamenn af jaðri íslensks samfélags, sem til þessa hafa haft lítinn sem engan aðgang að leikhúsunum. Að frumkvæði R.E.C. Arts hafa þau í fjórgang fyllt Þjóðleikhússkjallarann, af fólki, sameiningaranda og röddum fólks sem hér fá að segja sínar sögur og gera tilraunir með sviðslistaformið. Hér er á ferðinni bæði mikilsverð, gagnkvæm inngilding og von um litríka, fjölradda framtíð á sviðum landsins.
  • Stefan Sand tónskáld og kórstjóri. Stefan hefur í sínu frumkvöðlastarfi einbeitt sér að því að ná til nýrra áheyrenda. Einstaklega vönduð sviðsetning á verkinu Look at the Music er gott dæmi um það. Þar upphefur hann döff ljóðlist, semur út frá henni tilkomumikið kórverk sem bæði er raddsungið og táknað og brúar þar með heima heyrandi og döff fólks. Verkið teygir sig út fyrir skilning tungumálanna og inn á svið bæði tónrænnar og sjónrænnar upplifunar svo að öll fái notið.
  • Stroke. Nýjung í heimildaleikhúsi þar sem myndefni og hljóðupptökur, í bland við hefðbundna trúðatækni, eru nýtt á áhrifamikinn hátt til að segja frá reynslu leikkonunnar Virginiu Gillard og lífi eftir heilablæðingu. Með óvenju mikilli berskjöldun tekst höfundum að gera því skil með list trúðsins Cookie, alteregoi leikkonunnar, hvernig líf okkar allra getur tekið óvænta stefnu í kjölfar sársaukafullra atburða sem enginn fær ráðið við. Sviðsverk sem ber vitni um djörfung í nálgun á viðkvæmu viðfangsefni.
  • Þórunn Guðmundsdóttir tónskáld. Þórunn hefur undanfarna áratugi unnið ómetanlegt brautryðjandastarf sem óperutónskáld, en hún hefur af einstakri ástríðu og metnaði frumsamið fjölda ópera og söngleikja ásamt librettóum. Einnig hefur hún verið órög að taka fjárhagslega áhættu með því að framleiða sjálf sýningar á þessum frumfluttu óperum, án teljandi utanaðkomandi styrkja. Ekkert tónskáld á landinu hefur hin síðari ár, verið svo afkastamikið í að frumsemja og sviðsetja óperur og eins og Þórunn.



Barnasýning ársins 2024

  • Fíasól gefst aldrei upp leikgerð Maríönnu Clöru Lúthersdóttur og Þórunnar Örnu Kristjánsdóttur byggð á verkum Kristínar Helgu Gunnarsdóttur. Sviðsetning: Borgarleikhúsið
  • Frost Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Hollvættir á heiði eftir Þór Túliníus. Sviðsetning: Leikhópurinn Svipir í samstarfi við Sláturhúsið
  • Kan(l)ínudans eftir Leevi Mettinen og Sóleyju Ólafsdóttur. Sviðsetning: Leevi Mettinen og Sóley Ólafsdóttir í samstarfi við Tjarnarbíó og Unga festival
  • Ævintýraóperan Hans og Gréta Sviðsetning: Kammeróperan í samstarfi við Tjarnarbíó


Leikstjóri ársins 2024

  • Agnar Jón Egilsson - Fúsi - aldur og fyrri störf Sviðsetning: Sviðslistahópurinn Monochrome í samstarfi við Borgarleikhúsið og List án landamæra
  • Björn Thors - Saknaðarilmur. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • María Reyndal - Með Guð í vasanum. Sviðsetning: Borgarleikhúsið
  • Stefán Jónsson - Lúna. Sviðsetning: Borgarleikhúsið
  • Tómas Helgi Baldursson - Félagsskapur með sjálfum mér. Sviðsetning: Klöverættin í samstarfi við Tjarnarbíó

Leikkona ársins 2024 í aðalhlutverki

  • Ebba Katrín Finnsdóttir - Orð gegn orði. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Ilmur Kristjánsdóttir - Ekki málið. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Katla Margrét Þorgeirsdóttir - Með Guð í vasanum. Sviðsetning: Borgarleikhúsið
  • Unnur Ösp Stefánsdóttir - Saknaðarilmur. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Virginia Gillard - Stroke. Sviðsetning: Trigger warning í samstarfi við MurMur Productions og Tjarnarbíó



Leikari ársins 2024 í aðalhlutverki

  • Björn Thors - Ekki málið. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Gunnar Smári Jóhannesson - Félagsskapur með sjálfum mérþ Sviðsetning: Klöverættin í samstarfi við Tjarnarbíó
  • Hilmir Snær Guðnason - Lúna. Sviðsetning: Borgarleikhúsið
  • Kjartan Darri Kristjánsson - Frost. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Sigurður Þór Óskarsson - Deleríum Búbónis. Sviðsetning: Borgarleikhúsið


Leikkona ársins 2024 í aukahlutverki

  • Kristbjörg Kjeld - Með Guð í vasanum. Sviðsetning: Borgarleikhúsið
  • Sólveig Arnarsdóttir - Með Guð í vasanum. Sviðsetning: Borgarleikhúsið
  • Vigdís Halla Birgisdóttir - Hollvættir á heiði. Sviðsetning: Leikhópurinn Svipir í samstarfi við Sláturhúsið
  • Vigdís Hrefna Pálsdóttir - Mútta Courage og börnin. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Þórunn Arna Kristjánsdóttir - X. Sviðsetning: Borgarleikhúsið


Leikari ársins 2024 í aukahlutverki

  • Agnar Jón Egilsson - Fúsi - aldur og fyrri störf. Sviðsetning: Sviðslistahópurinn Monochrome í samstarfi við Borgarleikhúsið og List án landamæra
  • Atli Rafn Sigurðarson - Mútta Courage og börnin. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Guðjón Davíð Karlsson - Frost. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Sverrir Þór Sverrisson - And Björk, of course... Sviðsetning: Leikfélag Akureyrar (Menningarfélag Akureyrar)
  • Þröstur Leó Gunnarsson - Ást Fedru. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið


Dansari ársins 2024

  • Elín Signý W. Ragnarsdóttir - The Simple Act of Letting go. Sviðsetning: Íslenski dansflokkurinn
  • Emilía Benedikta Gísladóttir - The Simple Act of Letting go. Sviðsetning: Íslenski dansflokkurinn
  • Erna Gunnarsdóttir - The Simple Act of Letting go. Sviðsetning: Íslenski dansflokkurinn
  • Inga Maren Rúnarsdóttir - Árstíðirnar. Sviðsetning: Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Snædísi Lilju Ingadóttur og Valgerði Rúnarsdóttur
  • Ólöf Ingólfsdóttir - Sjö ljóð úr óskrifaðri ljóðabók. Sviðsetning: Alltaf nóg slf í samstarfi við Tjarnarbíó og Reykjavík Dance Festival

Söngvari ársins 2024

  • Áslákur Ingvarsson - Póst-Jón. Sviðsetning: Sviðslistahópurinn Óður í samstarfi við Þjóðleikhúsið
  • Eggert Reginn Kjartansson - Ævintýraóperan Hans og Gréta. Sviðsetning: Kammeróperan í samstarfi við Tjarnarbíó
  • Heiða Árnadóttir - Mörsugur. Sviðsetning: Þrjátíu fingurgómar í samstarfi við Óperudaga
  • Hildur Vala Baldursdóttir - Frost. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Rán Ragnarsdóttir - Eitruð lítil pilla. Sviðsetning: Borgarleikhúsið



Leikmynd ársins 2024

  • Filippía I. Elísdóttir - Ást Fedru. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Eva Signý Berger - Fíasól gefst aldrei upp. Sviðsetning: Borgarleikhúsið
  • Guðný Hrund Sigurðardóttir, Hákon Pálsson og Rósa Ómarsdóttir - Molta. Sviðsetning: Rósa Ómarsdóttir og Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Gerðarsafn
  • Elín Hansdóttir - Saknaðarilmur. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Júlíanna Lára Steingrímsdóttir - Vaðlaheiðargöng. Sviðsetning: Sviðslistahópurinn Verkfræðingar í samstarfi við MurMur productions og Borgarleikhúsið


Búningar ársins 2024

  • Brynja Björnsdóttir  And Björk, of course… Sviðsetning: Leikfélag Akureyrar (Menningarfélag Akureyrar)
  • Filippía I. Elísdóttir - Ást Fedru. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Stefanía Adolfsdóttir - Deleríum Búbónis. Sviðsetning: Borgarleikhúsið
  • Júlíanna Steingrímsdóttir - Fíasól gefst aldrei upp. Sviðsetning: Borgarleikhúsið
  • Filippía I. Elísdóttir - Saknaðarilmur. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið


Lýsing ársins 2024

  • Katerina Blahutova - Árstíðirnar. Sviðsetning: Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Snædísi Lilju Ingadóttur og Valgerði Rúnarsdóttur
  • Ásta Jónína Arnardóttir - Ást Fedru. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Ásta Jónína Arnardóttir - Edda. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Ólafur Ágúst Stefánsson - Piparfólkið. Sviðsetning: Sviðslistahópurinn DÍÓ í samstarfi við MurMur productions
  • Björn Bergsteinn Guðmundsson - Saknaðarilmur. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið


Tónlist ársins 2024

  • Egill Andrason og Salka Valsdóttir - Edda. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Nicolai Johansen - Molta. Sviðsetning: Rósa Ómarsdóttir og Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Gerðarsafn
  • Valgeir Sigurðsson og Helgi Hrafn Jónsson - Mútta Courage og börnin. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Ásbjörg Jónsdóttir og Ragnheiður Erla Björnsdóttir - Mörsugur. Sviðsetning: Þrjátíu fingurgómar í samstarfi við Óperudaga
  • Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson - Saknaðarilmur. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið


Hljóðmynd ársins 2024

  • Kristján Sigmundur Einarsson - Ást Fedru. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Ronja Jóhannsdóttir - Kannibalen. Sviðsetning: Spotlight í samstarfi við Tjarnarbíó
  • Ísidór Jökull Bjarnason - Lúna. Sviðsetning: Borgarleikhúsið
  • Friðrik Margrétar- Guðmundsson - SUND. Sviðsetning: Sviðslistahópurinn Blautir búkar í samstarfi við MurMur Productions og Tjarnarbíó
  • Þorbjörn Steingrímsson - X. Sviðsetning: Borgarleikhúsið


Danshöfundur ársins 2024

  • Snædís Lilja Ingadóttir og Valgerður Rúnarsdóttir - Árstíðirnar. Sviðsetning: Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Snædísi Lilju Ingadóttur og Valgerði Rúnarsdóttur
  • Bára Sigfúsdóttir og Orfee Schuijt - Fabulation. Sviðsetning: Bára Sigfúsdóttir og Orfee Schuijt í samstarfi við Tjarnarbíó og Reykjavík Dance Festival
  • Rósa Ómarsdóttir- Molta. Sviðsetninga: Rósa Ómarsdóttir og Íslenski dansflokkurinn í samstarfi við Gerðarsafn
  • Ólöf Ingólfsdóttir - Sjö ljóð úr óskrifaðri ljóðabók. Sviðsetning: Alltaf nóg slf í samstarfi við Tjarnarbíó og Reykjavík Dance Festival
  • Tom Weinberger - The Simple Act of Letting go. Sviðsetning: Íslenski dansflokkurinn


Dans- og sviðshreyfingar ársins 2024

  • Seiðr og Ernesto Camilo Aldazábal Valdés - Ást Fedru. Sviðsetning: Þjóðleikhúsið
  • Unnur Elísabet Gunnarsdóttir - Deleríum Búbónis. Sviðsetning: Borgarleikhúsið
  • Valgerður Rúnarsdóttir - Fíasól gefst aldrei upp. Sviðsetning: Borgarleikhúsið
  • Aðalbjörg Árnadóttir og Ylfa Ösp Áskelsdóttir - Piparfólkið. Sviðsetning: Sviðslistahópurinn DÍÓ í samstarfi við MurMur productions
  • Andrean Sigurgeirsson í samstarfi við við Birni Jón Sigurðsson, Ernu Guðrúnu Fritzdóttur, Eygló Hilmarsdóttur, Kjartan Darra Kristjánsson og Þóreyju Birgisdóttur - SUND. Sviðsetning: Sviðslistahópurinn Blautir búkar í samstarfi við MurMur Productions og Tjarnarbíó

Uppfært: Fréttin hefur verið uppfærð með ítarlegri samantekt um fjölda tilnefninga og upplýsingum um hvar og hvenær verðlaunin verða afhent. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Til að vera skapandi og ná árangri þarft þú að yfirgnæfa gagnrýnisröddina innra með þér. Mundu að ekki eru allir viðhlæjendur vinir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lotta Luxenburg
3
Sofie Sarenbrant
4
Lucinda Riely og Lucinda Riley
5
Eppu Nuotio
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Til að vera skapandi og ná árangri þarft þú að yfirgnæfa gagnrýnisröddina innra með þér. Mundu að ekki eru allir viðhlæjendur vinir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lotta Luxenburg
3
Sofie Sarenbrant
4
Lucinda Riely og Lucinda Riley
5
Eppu Nuotio
Loka